Jóla- og Bikarmót TSÍ 17.-30.desember 2013

Síðasta mót ársins, Jóla- og Bikarmót TSÍ verður haldið 17-23. desember fyrir börn og unglinga, 27.-30. desember fyrir fullorðna ásamt ITN flokki. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik á mótinu.

Dagana 17-23 desember er keppt í :
Mini tennis, 10-, 12-, 14-, 16-, og 18 ára og yngri
Mótskrá verður tilbúin 15.desember.

Á milli jóla og nýárs, dagana 27-30 desember er keppt í:
ITN flokki sem er fyrir alla. Einnig er keppt í 30+, 40+, 50+, 60+ og í byrjendaflokki og tvenndarleik.
Mótskrá verður tilbúin 23.desember.
Mótstjóri er: Grímur Steinn Emilsson – grimur@tennishollin.is & s.564-4030

Síðasti skráningardagur í barna- og unglingaflokkar er 14.desember en 19 desember í meistara- og öðlingaflokkar. Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan eða upp í Tennishöll.

Úrslitaleikur, verðlaunaafhending og pizzapartý hefst 30. desember kl. 18.

Mótsgjöld í fullorðinsflokkum eru:
* Einliðaleikur: 3.000 kr
* Tvíliðaleikur: 2.000 kr

Mótsgjöld í barnaflokkum eru:
* Einliðaleikur: 2.000 kr
* Tvíliðaleikur: 1.500 kr
* Mini tennis: 1.000 kr
* Verð í ITN flokk fyrir börn 16 ára og yngri er 2.000 kr

Vinsamlegast skráið ykkur með því að fylla inn í formið hér fyrir neðan. Athugið að mikilvægt er að skoða lista yfir skráða keppendur þegar búið er að skrá sig til að vera viss um að skráning hafi tekist.

 

Hægt er að sjá lista yfir skráða keppendur hér.