2.Stórmót TSÍ 12.-17.mars 2013 – Mótskrá

2.Stórmót TSÍ hefst á morgun mánudaginn 12.mars og er keppt í Tennishöllinni Kópavogi.  Keppt er í einliðaleik í ITN styrkleikaflokki og barnaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri, 14 ára og yngri og mini tennis. Mótskrár má sjá hér fyrir neðan:

Mini tennismót hefst kl 14:30 á miðvikudaginn 13.mars. Allir krakkar fæddir árið 2001 og yngri mega spila og þurfa ekki að skrá sig – bara mæta.

Mótskrá má einnig sjá hér. Leikmenn geta smellt á nöfnin sín og fundið út á móti hverjum og hvenær þau eiga að keppa hér.

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius s.820-0825. Netfang: raj@tennis.is

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn sem hefst kl 16 á sunnudaginn 17.mars.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

1 mínúta of seint = tapar 1 lotu

6 mínútum of seint = tapar 2 lotum

11 mínútum of seint = tapar 3 lotum

16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.