Mótskrá – Luxilon 5.Stórmót TSÍ 13.-18.nóvember 2012

Luxilon 5.Stórmót TSÍ hefst á morgun mánudaginn, 13.nóvember og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki og barnaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og mini tennis.

Mótskrár má sjá hér fyrir neðan:

Mini tennis mótið fer fram miðvikudaginn 14.nóvember kl 14:30-16:00. Öllum krökkum sem langar til að taka þátt í Mini tennismótinu geta mætt á mánudaginn kl 14:25.

Verðlaunaafhending fer fram kl 15 sunnudaginn 18.nóvember kl. 15:00 eftir síðasta leik í 12 ára og yngri.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

  • 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
  • 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
  • 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
  • 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 tennis@tennis.is