Mótskrá – Íslandsmót utanhúss barna- og unglingaflokkar

Íslandsmót utanhúss í barna- og unglingaflokkum hefst á mánudaginn, 13.ágúst og er keppt í einliða- og tvíliðaleik. Keppt er á völlum Tennisdeildar Víkings, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík.

Mótskrár fyrir flokkana má sjá hér fyrir neðan:

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

  • 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
  • 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
  • 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
  • 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Verðlaunaafhending fyrir alla flokka verður laugardaginn 18.ágúst í Þróttaraheimilinu.

Mótstjóri : Raj K. Bonifacius s.820-0825 netfang: raj@tennis.is