Skráning í Íslandsmót utanhúss 2012 – Meistaraflokkur

Íslandsmót utanhúss í barna- og unglingaflokkum verður haldið á Tennisvöllum Víkings 8.- 12. ágúst næstkomandi.

Spilað verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik.

Síðasti skráningardagur er 6.ágúst og mótskrá kemur 7.ágúst kl 18.

Þátttökugjald:
Einliðaleikur
3.000 kr.
Tvíliða/Tvenndarleikur 2.000 kr./mann

Verðlaunafhending verður eftir úrslitaleiki í karla- og kvennaflokki sem verða sunnudaginn 12.ágúst kl 16. Mótsgjald skal greiða mótstjóra fyrir fyrsta leik.

Mótstjóri : Grímur Steinn Emilsson s.564-4030, netfang: grimur@tennishollin.is

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Skráningu  í mótið er lokið.
Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.