HEAD Icelandic Open 20.-26.ágúst – síðasta skráningadagur þriðjudaginn 24.júlí

Evrópumótið U16 – HEAD Icelandic Open fyrir 16 ára og yngri verður haldið 20.-26.ágúst næstkomandi. Spilað í einliða- og tvíliðaleik á á Tennisvöllum Víkings. Nánari uppplýsingar má sjá á heimasíðu Evrópu tennissambandsins. Mótstjóri er Raj K. Bonifacius s. 820-0825.

Nú styttast í síðasta skráningadag fyrir HEAD Icelandic Open sem verður  20-26.ágúst.  Síðasta dagur til að skrá sig inni mótið er þriðjudaginn 24.júlí.

Leiðbeiningar fyrir þá sem ætla að taka þátt í Evrópumóti U16 – HEAD Icelandic Open.

Evrópska tennissambandið hefur breytt reglum um skráningu þannig að nú þurfa allir leikmenn sem skrá sig á mót hjá þeim hvort sem það er hér á landi eða annarsstaðar að sækja um svokallað iPin númer. Þetta númer er einskonar persónuskilríki inní gagnagrunn hjá þeim og gerir leikmönnum kleift að skrá sig á mót hvar sem er í evrópu og hafa eigin prófíl á heimasíðu þeirra (www.tenniseurope.org) og svo framvegis.

Síðasti skráningardagur fyrir HEAD Icelandic Open mótið sem verður hér heima er þriðjudaginn 24.júlí. fyrir kl 14.00 og þurfa því allir þeir leikmenn sem ætla að taka þátt að sækja um þetta iPin númer og síðan skrá sig í mótið sjálft á heimasíðu þeirra. Athugið að það tekur sólarhring fyrir IPIN númerið að verða virkt þannig að það þarf að skrá sig einum sólarhring fyrir.

Hér fyrir neðan er þetta skref fyrir skref og einnig meðfylgjandi linkar um hvar þarf að sækja um þetta númer og skrá sig á mótið. Það stendur einnig að það þarf að borga $30 fyrir iPin númerið sem er rétt, en það er hægt að haka við eða velja að borga “on site” sem þýðir einfaldlega að leikmaður sem sækir um númer borgar þetta gjald á mótsstað, eða hér hjá mótstjóra áður en mótið hefst.

Ef það eru einhverjar spurning þá endilega hafið samband við Raj í síma 820-0825.

Hérna eru linkarnir og einnig skrefin sjálf:

1. Sækja um iPin númer á heimasíðu TennisEurope http://tenniseurope.org/page.aspx?id=16409
2. Skrá leikmann í mótið http://te.tournamentsoftware.com/member/login.aspx?ReturnUrl=%2fonlineentry%2fonlineentry.aspx%3fid%3d957947B8-EA21-4F5B-BA44-9B61F37189F8