Karlalandsliðið komið til Skopje á Davis Cup

F.v. Jón Axel, Arnar, Andri og Birkir

Karlalandslið Íslands er komið til Skopje í Makedóníu þar sem það keppir á Davis Cup í 3.deild Evrópuriðli. Þetta er í sextánda skiptið í röð sem Ísland keppir á Davis Cup eða allt frá árinu 1996.

Keppnin hefst á miðvikudaginn 11.maí og er leikið til laugardagsins 14.maí. Keppt er á leirvöllum utandyra.

Tólf þjóðir taka þátt auk Íslands og eru: Albanía, Andorra, Armenía, Georgía, Malta, Makedónía, Moldovía, Svartfjallaland, Noregur, San Marino og Tyrkland. Keppt er í fjórum þriggja liða riðlum og sigurvegarar í hverjum riðli keppa um hvaða tvær þjóðir fara upp í 2.deild.

Íslenska karlalandsliðið er þannig skipað í ár: Arnar Sigurðsson TFK, Andri Jónsson BH,  Birkir Gunnarsson TFK og Jón Axel Jónsson UMFÁ.