5. Stórmót TSÍ hefst á laugardaginn, 20.nóvember og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi.
Keppt er í fjórum flokkum:
- Mini tennis fyrir þá yngstu (fædd árið 2000 eða seinna)
- Barnaflokkar (10, 12, 14 ára og yngri ) – keppt verður í riðlum í hverjum flokki fyrir sig
- ITN Styrkleikaflokkur einliða sem er opinn fyrir alla
- ITN Styrkleikaflokkur tvíliða sem er opinn fyrir alla
Mótskrá má sjá hér fyrir alla flokka
Keppt verður í mini tennis mánudaginn 22.nóvember kl 14:30.
ATHUGIÐ! Vegna gríðarlegrar skráningar í mótinu hefur U10 ára stelpur flokkurinn verið færður til 27.nóv 12:30. Auk þess hefur U14 ára stelpur flokkurinn verið færður til laugardagsins 27.nóv. Nákvæmari tímasetning leikja fyrir U14 stelpur kemur inn sunnudaginn 21.nóvember.
Tvíliðaleiks-mótskrá kemur upp Sunnudaginn 21.nóvember.
Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikina í ITN einliða sem byrja kl 16 á mánudaginn 22.nóvember.
Mótstjóri er Jón Axel Jónsson s. 659-7777 netfang; jonaxeljonsson@hotmail.com