4. Stórmót TSÍ 23.-25.okt 2010

4. Stórmót TSÍ verður haldið 23.-25.okt. næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppt verður í þremur flokkum: Mini tennis fyrir 10 ára og yngri og ITN styrkleikaflokki bæði einliða- og tvíliðaleik fyrir alla aðra.

Markmið með ITN styrkleikaflokknum er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.

Síðasti skráningar (og afskráningar!!) dagur fyrir mótið er miðvikudaginn 20.október kl 23:00.

Mótskráin verður tilbúin 21.okt. og hægt verður að nálgast hana á þessari síðu. Einnig er hægt að senda mótstjóranum Raj K. Bonifacius (s.820-0825) tölvupóst á netfangið motstjori@tennis.is

Þátttökugjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis/10 ára ; 1.500 kr./fædd f. 1992 og yngri; 2.500 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1992 og yngri; 1.500 kr./aðrir

Búið er að loka fyrir skráningu í 4.stórmót TSÍ.