Mótskrá fyrir 3.Stórmót TSÍ 1.-3.maí 2010

3.Stórmót TSÍ hefst á laugardaginn, 1.maí og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki.

Mótskrá má sjá hér fyrir neðan:
ITN Styrkleikaflokkur – Einliðaleikur
ITN Styrkleikaflokkur – Tvíliðaleikur

Það verður ekki sérstakt mót fyrir 10 ára og yngri (krakkar fædd 2000 og síðar) í þetta skiptið, heldur verða þeir krakkar sem skráðu sig í þann flokk með í ITN styrkleikaflokkinum. Að sjálfsögðu verða þó veitt verðlaun í 10 ára og yngri flokknum eftir árangri þeirra í mótinu.

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn í einliðaleik sem hefst kl 16:30 á mánudaginn.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja. Mótstjóri er Leifur Sigurðarson sími 772-3872.