Íslandsmóti innanhúss lauk í gær í meistaraflokki karla og kvenna. Hera Björk Brynjarsdóttir úr Tennisdeild Fjölnis og Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og Mjúkboltafélagi Reykjavíkur urðu bæði tvöfaldir Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki í meistaraflokki. Þetta er þriðja árið í röð sem Rafn Kumar landar titlinu auk og fjórða árið í röð í tvíliðaleik. Þetta er í fyrsta skipti sem Hera Björk fagnar titlinum.
Í úrslitaleik karla mættust feðgarnir Rafn Kumar og Raj K. Bonifacius úr Tennisdeild Víkings. Rafn Kumar hafði betur og sigraði 6-3 og 6-1. Rafn Kumar varð einnig Íslandsmeistari í tvíliðaleik karla ásamt föður sínum Raj.
Í úrslitaleik kvenna mættust Hera Björk og Anna Soffia Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs. Hera Björk sigraði 6-4 og 6-3 í hörkuleik. Anna Soffia komst í 3:0 í fyrsta setti en Hera Björk vann næstu sex af sjö lotum og þar með settið, 6-4. Hera Björk komst svo í 4-1 í næsta setti en Anna Soffia minnkaði muninn í 4-3, áður en Hera vann næstu tvær lotur og settið þar með 6-3. Hera Björk varð einnig Íslandsmeistari í tvíliðaleik kvenna ásamt Önnu Soffiu.
Ekki var keppt í tvenndarleik í meistaraflokki.
Öll úrslit í mótinu má sjá með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.