Október – Nóvember 2019
Dómaranámskeið I er fyrir alla fædda 2006 og fyrr sem hafa áhuga á að læra tennisreglurnar og hvernig það er að dæma tennisleik – bæði sem línudómari og/eða stóldómari. Kennslugögn eru frá alþjóða tennissambandinu og fá þátttakendur möppu með reglubók, skorkort og myndrænar leiðbeiningar.
Dómaranámskeið II er fyrir þá sem hafa starfað sem línu- eða stóldómari og vantar meiri þjálfun og/eða kunnáttu sem stóldómari.
Kennslan fer fram í Íþróttamiðstöðunni Laugardal (Engjavegur 6, 104 Reykjavík), Tennisklúbbi Víkings (Traðarland 1, 108 Reykjavík) og Tennishöllinni í Kópavogi (Dalsmári 13, 201 Kópavogur).
Námskeið I Laugardaginn, 19.október kl. 9-15 (Íþróttamiðstöðunni í Laugardal)
Sunnudaginn, 20.október kl.14.30-17.30 (Tennisklúbbi Víkings)
Föstudaginn, 25.október kl.18.30-20.30 (Tennishöllinni í Kópavogur)
Námskeið II Laugardaginn, 16.nóvember kl.9-15 (íþróttamiðstöðunni í Laugardal)
Sunnudaginn, 17.nóvember kl.14.30-17.30 (Tennisklúbbi Víkings)
Föstudaginn, 22.nóvember kl.18.30-20.30 (Tennishöllinni Kópavogur)
Loka skráningardagur – Námskeið I er 15. október og Námskeið II 12. nóvember.
Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu.
Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna.
Skráning er á www.tennissamband.is , í síma 820-0825 og hér fyrir neðan.
Kennari námskeiðsins er alþjóða (ITF) tennisdómari , Raj K. Bonifacius.