Tennis Europe U14 Smáþjóðamótinu lokið

Smáþjóðameistaramótið í tennis fór fram dagana 19.–22. apríl 2026 í Marsa á Möltu. Þar fékk íslenska liðið tækifæri til að keppa gegn sterkum þjóðum og upplifa alvöru alþjóðlegt mót.
Mótið hófst á æfingaakademíu þar sem allir keppendur æfðu saman, kynntust aðstæðum og komu sér vel inn í stemninguna áður en keppnin hófst.
Þátttökuþjóðir mótsins voru Malta, Lúxemborg, Andorra, Svartfjallaland, Kýpur og Færeyjar sem tóku þátt í fyrsta skipti í ár.
Íslenska liðið var þannig skipað: Ólafur Birkir Baldursson, Tómas Marshall, Hildur Sóley Freysdóttir og Gerður Líf Stefánsdóttir. Með liðinu var liðsstjórinn Soumia Islami Georgsdóttir.
Leikmenn sýndu mikla baráttu og stóðu sig vel í sínum leikjum. Það voru bæði sigrar og krefjandi viðureignir, en það sem stendur upp úr er hvað liðið lærði mikið á mótinu.
Þátttaka Íslands í mótinu var mikilvægur liður í þróun ungra leikmanna og gaf dýrmæta innsýn í kröfur alþjóðlegrar keppni. Liðið sýndi framfarir, seiglu og metnað sem gefur góð fyrirheit fyrir framtíðina.
Áfram Ísland!