Í samræmi við fjárhagsáætlun TSÍ, verður kr. 1.000.000.- ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2024.
Styrkirnir eru eingöngu hugsaður til að létta undir kostnaði vegna þátttöku í mótum erlendis.
Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tsi.is
Skilafrestur umsókna er til og með sunnudagsins 5. janúar 2025.
Umsóknin skal ekki vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn, kennitölu, símanúmer og heimilisfang umsækjanda.
- Bankaupplýsingar.
- Upplýsingar um mót erlendis, sem umsækjandi tók þátt í á árinu 2024:
- Nafn móts og styrkleiki þess
- Vefsíðu mótsins og árangur
- Staðsetning (land og borg)
- Tímasetning
- Kostnaður
- Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram.
- Upphæð styrks sem sótt er um.
Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum í lok janúar 2025.