Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2023

Forseti Íslands efnir til nýrra verðlauna, Íslensku lýðheilsuverðlaunanna, í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, ÍSÍ og Geðhjálp.
Ráðgert er að veita lýðheilsuverðlaunin í fyrsta sinn í vor og er óskað tillagna frá almenningi um hver ættu að hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi.

Verðlaununum er ætla að vekja athygli á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings. Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum, annars vegar til einstaklings og hins vegar til samtaka, stofnunar eða fyrirtækis sem hefur látið gott af sér leiða á þessu sviði.

Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu kemur m.a. eftirfarandi fram:

„Lýðheilsa er samheiti yfir bæði heilsuvernd og forvarnir. Lýðheilsustarf byggir á samvinnu um að bæta heilbrigði þjóðarinnar, líðan og lífsgæði í samfélaginu. Litið er jafnt til líkamlegrar og andlegrar heilsu. Vitað er að útivist og hreyfing geta stuðlað að góðri lýðheilsu, eins og margs konar forvarnir og menntun, geðrækt og góð heilbrigðisþjónusta, svo dæmi séu nefnd.

Með því að efla lýðheilsu eflum við um leið mann- og félagsauð þjóðarinnar og aukum almenna vellíðan. ”

Almenningur er hvattur til að senda inn tillögur að verðugum verðlaunahöfum, ásamt rökstuðningi, á vefsíðunni https://www.lydheilsuverdlaun.is/ fyrir 20. mars.

Dómnefnd mun svo fjalla um tillögurnar og tilnefna þrjá í hvorum flokki. Tvenn verðlaun verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í aprílmánuði.