Styrkur vegna afreksverkefna á eigin vegum vegna ársins 2020

Í samræmi við fjárhagsáætlun TSÍ 2019, sem samþykkt var á Ársþingi sambandsins í maí 2019, verður samskonar upphæð ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2020. Verði ekki öllu ráðstafað, í ljósi aðstæðna á árinu 2020, þá mun hluti upphæðar flytjast milli ára.

Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tennissamband.is.

Skilafrestur umsókna er til og með 7. febrúar 2021.

Umsóknin skal ekki vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

Nafn, kennitölu, símanúmer og heimilisfang umsækjanda

Banka upplýsingar

Upplýsingar um mót sem umsækjandi tók þátt í á árinu og hyggst taka þátt í til loka ársins:

  • Nafn móts og styrkleiki þess
  • Staðsetning
    • Tímasetning
    • Kostnaður

Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram

Upphæð styrks sem sótt er um

Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum innan viku frá skilafresti, þ.e. í síðasta lagi 14. febrúar 2021.

Virðigarfyllst,
Hjörtur