Stjórn Tennissambands Íslands staðfestir hér með þátttakendur í eftirfarandi verkefni:
Verkefni: Fed Cup Europe / Africa Zone group III
Dagsetning: 16. – 23.april 2018
Staðsetning: Túnis, Túnis
Tennis spilarar: Hera Björk Brynjarsdóttir, Anna Soffía Grönholm, Sofia Sóley Jónasdóttir, Íris Staub
Þjálfari / Fararstjóri: Jón Axel Jónsson
Varamenn: Rán Christer, Selma Óskarsdóttir, Sara Lind Þorsteinsdóttir
Í viðhengi má finna bæði reglur og leiðbeiningar vegna verkefna á vegum TSÍ ásamt Fed Cup upplýsingaskjali.
Ný lög ÍSÍ um lyfjamál tóku gildi 1. janúar 2015. Lögin eru til samræmis við uppfærðar Alþjóða lyfjareglur sem tóku gildi á sama tíma.Íþróttamenn eða aðrir einstaklingar eru ábyrgir fyrir að vita hvað telst brot á lyfjareglum og vita hvaða efni og aðferðir eru á bannlistanum.
Tennisspilarar, farastjórar og þjálfarar sem taka þátt í verkefnum á vegum TSÍ hvort heldur er innanlands eða á alþjóðavettvangi, mega eiga von á að vera boðaðir í lyfjapróf hvar og hvenær sem er.
Stjórnin óskar þátttakendum góðrar ferðar og góðs gengis.
Fyrir hönd Tennissambands Íslands,
Jón-Axel Jónsson