4. Stórmót TSÍ 2017: Skráning opin

4. Stórmót TSÍ verður haldið 16. – 19. nóvember 2017 í Tennishöllinni Kópavogi.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis” – Laugardaginn, 18. nóvember kl.12:30
  • Einliðaleik í barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára & 14 ára
  • Einliðaleik í ITN flokki

ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þann stað sem hann telur vera réttan. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.

Mótsgjald:

Einliðaleikur

  • 1.850 kr./mini tennis
  • 2.750 kr./ barna- og unglingaflokkum
  • 3.750 kr./ ITN

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: www.tennissamband.is , www.tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudaginn, 13. nóvember kl. 18. Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudaginn, 19. nóvember eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótskrá: Tilbúin 13. nóvember (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is