Öruggir sigrar hjá Birki og Hjördísi Rósu

Birkir sigraði örugglega í dag

Birkir sigraði örugglega í dag

Birkir Gunnarsson og Hjördís Rósa Guðmundsdóttir byrja vel á fyrsta degi Smáþjóðaleikanna en þau eru bæði komin áfram í 2.umferð í einliðaleik.

Birk­ir mætti Bra­dley Callus frá Möltu í 1. um­ferð í einliðaleik og sigraði hann í tveim­ur sett­um, 6-2 og 6-1, í leik sem stóð yfir í rúm­an klukku­tíma. Birkir hafði áður keppt við Callus fyrir tveimur árum á Davis Cup og sigraði hann einnig þá. Birkir keppir næst við kýpverjann Sergios Kyratzia sem er númer 1.456 í heiminum og er talinn vera sjötti sterkasti keppandinn í einliðaleik karla á mótinu.

Hjördís Rósa spilaði mjög vel í dag

Hjördís Rósa spilaði mjög vel í dag

Hjör­dís Rósa Guðmunds­dótt­ir er kom­in í 2. um­ferð í einliðal­eik í tenn­is á Smáþjóðal­eik­un­um eft­ir öruggan sig­ur gegn Judit Cart­ana Al­ana frá Andorra. Hjördís Rósa mætir Kathinka Von Deichmann frá Liechtenstein á morgun kl. 11.45. Von Deichmann er númer 393 í heimi og talinn vera annar sterkasti keppandinn í einliðaleik kvenna á mótinu.

Rafn Kumar féll naumlega úr leik eftir að tapa í oddalotu í öðru setti

Rafn Kumar féll naumlega úr leik eftir að tapa í oddalotu í öðru setti

Anna Soffia Grönholm og Rafn Kumar Bonifacius töpuðu bæði sínum einliðaleikjum og eru þar með úr leik. Anna Soffia tapaði fyrir Katrinu Sammut frá Möltu 6-2 og 6-3. Rafn Kumar tapaði fyrir Laurent Recouderc frá Andorra 6-0 og 7-6.  Recouderc, sem er franskur,  hefur verið meðal efstu 125 atvinnumanna í heimi og unnið menn á borð við Tómas Berdych (nr.4 í heiminum) og Jo-Wilfred Tsonga (nr.15 í heiminum).

Í tvíliða kvenna kepptu Anna Soffía og Hjördís Rósa við Sammut og Elaine Genovese frá Möltu.  Íslenska stelpurnar töpuðu 6-4 og 6-2. Birkir og Rafn Kumar kepptu við Recouderc og  Joan Bautista Poux Gautier frá Andorru og töpuðu 7-5 og 6-4. Ísland er þar með úr leik í bæði tvíliðaleik karla og kvenna.

Á morgun verður fyrsta umferð í tvenndarleik spiluð og munu Hera Björk Brynjarsdóttir og Birkir spila saman á móti Claudine Schaul og Mike Scheidweiler frá Luxembourg.

Anna Soffia náði ekki að landa sigri í dag

Anna Soffia náði ekki að landa sigri í dag

Leikir íslenska liðsins á morgun, miðvikudaginn 3.júní eru:
kl. 11:45 – Hjördís Rósa Guðmundsdóttir -Kathinka Von Deichmann, Liechtenstein
kl. 12:45 – Birkir Gunnarsson – Sergios Kyratzis, Kýpur
kl. 15:00 – Birkir Gunnarsson og Hera Björk Brynjarsdóttir – Schaul og Scheidweiler, Lúxemborg