1.Stórmót TSÍ verður haldið 11. og 13.-15.febrúar

1.Stórmót TSÍ 2015 verður haldið dagana 11. & 13.-15.febrúar 2015 næstkomandi í Tennishöllinni Kópavogi.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis” fyrir þá yngstu – fæddir árið 2003 eða seinna og skipt í 10 ára og 12 ára flokka
  • Einliðaleik í barna- og unglingaflokkum – 10 ára / 12 ára / 14 ára / 16 ára / 18 ára og yngri
  • Einliðaleik í ITN flokki (Ath! Hámark 48 keppendur)

Hægt er að spila að hámarki í tveimur einliðaleiksflokkum í barnaflokkum og í ITN einliðaleik. ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þeim stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.

Mini tennis mótið verður miðvikudaginn, 11.febrúar kl. 14.30-15.30. Það er fyrir krakka fædda árið 2003 eða seinna. Keppt verður í tveimur hópum – 10 ára og yngri & 11-12 ára. Allir eiga að mæta kl 14:20. Mótsgjald er 1500 kr.

Einliðaleikur – 1.500 kr./mini tennis; 2.400 kr./ barna- og unglingaflokkum; 3.500 kr./ ITN

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: www.tennissamband.iswww.tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er miðvikudaginn, 11.febrúar kl.18.00.

Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudaginn, 15.febrúar eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótskrá: Tilbúin 12.febrúar (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is

Skráningu í mótið er lokið.

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.