1.Stórmót TSÍ 14.-16.febrúar 2014

1.Stórmót TSÍ árið 2014 verður haldið 14.-16.febrúar næstkomandi í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

• “Mini Tennis” fyrir þau yngstu (fædd árið 2002 eða yngri og skipt í 10 og 12 ára flokka)
• Barnaflokkar (10 & 12 ára og yngri)
• ITN Styrkleikaflokkur sem er opinn fyrir alla (ath. hámark 40 keppendur)

Mini tennis mótið fer fram miðvikudaginn 12.febrúar kl 14:30-16:00. og er fyrir krakka fædd árið 2002 og yngri. Keppt verður í tveimur hópum, 10 ára og yngri & 11-12 ára. Allir eiga að mæta kl 14:25. Mótsgjald 1.500 kr.

Markmið styrkleikakerfisins er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og númerið svo uppfært eftir mótið.

Mótsgjald:
Einliðaleikur
– 1.500 kr./mini tennis; 2.200 kr./fædd f. 1998 og yngri; 3.200 kr./aðrir
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: Hér fyrir neðan eða í netfangi tennis@tennis.is
ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er þriðjudaginn 11.febrúar  kl.18:00.

Boltar: Wilson

Verðlaunaafhending fer fram eftir úrslitaleik ITN móts sunnudaginn 16 .febrúar.

Mótskrá: Tilbúin 13.febrúar (kemur inná www.tennissamband.is og www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is

Auglýsingu fyrir mótið má sjá hér.

Skráningu í mótið er lokið.

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.