4.Stórmót TSÍ 12.-17.nóvember 2013

4.Stórmót TSÍ verður haldið 12.-17. nóvember næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
• “Mini Tennis” fyrir þá yngstu (fædd árið 2001 eða yngri og skipt í 10 og 12 ára flokka)
• Barnaflokkar (10 & 12 ára og yngri)
• ITN Styrkleikaflokkur sem er opinn fyrir alla

Mini tennis mótið fer fram föstudaginn 15.nóvember  kl 14:30-16:00 og er fyrir krakka fædd árið 2001 og yngri. Keppt verður í tveimur hópum, 10 ára og yngri & 11-12 ára. Allir eiga að mæta kl 14:25. Mótsgjald 1.500 kr.

Markmið styrkleikakerfisins er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og númerið svo uppfært eftir mótið.

Mótsgjald:
Einliðaleikur
– 1.500 kr./mini tennis; 2.000 kr./fædd f. 1997 og yngri; 3.000 kr./aðrir
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: Hér fyrir neðan eða í netfangi tennis@tennis.is
ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er föstudaginn, 8.nóvember, kl.18.00

Boltar: Wilson

Verðlaunaafhending fer fram eftir úrslitaleik ITN móts sunnudaginn, 17.nóvember.

Mótskrá: Tilbúin 10.nóvember (kemur inná www.tennissamband.is og www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is

Auglýsingu fyrir mótið má sjá hér.

Skráningu í mótið er lokið.

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.