Íslandsmót innanhúss 25.-28.apríl

Íslandsmótið innanhúss verður haldið í Tennishöllinni Kópavogi 25.-28.apríl næstkomandi.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Mini tennis fyrir þau yngstu (fædd árið 2001 eða seinna). Einliðaleikur
  • Barna- og unglingaflokkar 10, 12, 14, 16, 18 ára og yngri. Einliða- og tvíliðaleikur
  • Meistaraflokkur karla og kvenna. Einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
  • Öðlingaflokkar, 30, 40 og 60 ára og eldri. Einliða- og tvíliðaleikur

Vinsamlegast athugið að hægt er að keppa að hámarki í þremu einliðaleiksflokkum og tveimur tvíliða- og/eða tvenndarleiksflokkum.

Skráningu lýkur föstudaginn 19.apríl kl. 18:00.

Mótskrá verður svo birt á www.tennissamband.is 21.apríl

Þátttökugjald:
Barnaflokkar: Einliðaleikur 1.500 kr. (Míni Tennis); 2.000 kr. aðra; Tvíliðaleikur 1.000 kr./mann
Aðrir flokkar: Einliðaleikur 3.000 kr.; Tvíliða/Tvenndarleikur 2.000 kr./mann

Mótstjóri: Raj Bonifacius s. 820-0825, netfang: tennis@tennis.is

Skráningu í mótið er lokið.

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.