2.Stórmót TSÍ 12.-17.mars 2013

2.Stórmót TSÍ verður haldið 12.-17. mars næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
• “Mini Tennis” fyrir þá yngstu (fædd árið 2001 eða yngri og skipt í 10 og 11/12 ára flokka)
• Barnaflokkar (10 & 12 ára og yngri)
• ITN Styrkleikaflokkur sem er opinn fyrir alla (ATH! –  Hámark 30 keppendur)

Mini tennis mótið fer fram miðvikudaginn 13.mars  kl 14:30-16:00 og er fyrir krakka fædd árið 2001 og yngri. Keppt verður í tveimur hópum, 10 ára og yngri & 11-12 ára. Allir eiga að mæta kl 14:25. Mótsgjald 1.500 kr.

Markmið styrkleikakerfisins er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og númerið svo uppfært eftir mótið.

Mótsgjald:
Einliðaleikur
– 1.500 kr./mini tennis; 2.000 kr./fædd f. 1997 og yngri; 3.000 kr./aðrir
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: Hér fyrir neðan, á  www.tennis.is eða í netfangi tennis@tennis.is
ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er föstudaginn, 8.mars, kl.18.00

Boltar: Wilson

Verðlaunaafhending fer fram eftir úrslitaleik ITN móts sunnudaginn, 17.mars.

Mótskrá: Tilbúin 10.mars (kemur inná www.tennissamband.is og www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is
Auglýsingu fyrir mótið má sjá hér.

Vinsamlegast skráið ykkur með því að fylla inn í formið hér fyrir neðan. Athugið að mikilvægt er að skoða lista yfir skráða keppendur til að vera viss um að skráning hafi tekist.

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.