Raj sigraði á HEAD ITN mótinu

Fyrsta mót í mótaröð Víkings, HEAD ITN mótið, kláraðist 7.júní síðastliðinn. Mótið gekk mjög vel og fengu keppendur gott veður. Þó það voru bara 20 þátttakendur þá fengu allir keppendur a.m.k. 2 leiki.
Raj K. Bonifacius úr Tennisdeild Víkings sigraði mótið með því að leggja Stefán Reyni Pálsson í úrslitaleiknum 6-3 og 6-0. Í þriðja sæti var Rafn Kumar Bonifacius úr Tennisdeild Víkings en hann sigraði Sverri Bartolozzi UMFÁ 6-1 og 6-2.
Í B-keppninni sigraði Hjördís Rósa Guðmundsdóttir úr Badmintonfélagi Hafnafjarðar. Hún lagði Ingimar Jónsson 9-8 í úrslitaleiknum.
Öll úrslit úr mótinu má sjá hér.
Næsta mót í mótaröð Víkings, WILSON ITN mótið, hefst í dag á Tennisvöllum Víkings. Nánari upplýsingar og mótskrá má sjá hér.