Miðnæturmót í tennis 2012

Miðnæturmótið 2008

Miðnæturmót Víkings í tennis verður haldið á Víkingsvöllum þriðjudagskvöldið 19.júní kl 18-23.

Mótið hentar öllum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Dregið verður saman í stutta tvíliðaleiki, þannig að með- og mótspilarar eru sjaldan þeir sömu. Í lokin eru allar unnar lotur taldar saman.

Mótsgjald 3.000 kr. Matur og drykkur er innifalið. Bikar, medallíur og tennisvörur í verðlaun.

Skráið ykkur sem fyrst – bara 16 manns komast inn í þessari keppni.

Skráning á http://www.tennis.is/test_motarod_2012 og í síma 820-0825.