Mótskrá – 1.Stórmót TSÍ 27.-30.janúar 2011

1.Stórmót TSÍ hefst á morgun föstudaginn, 27.janúar og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki og barnaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og mini tennis.

Mótskrár má sjá hér fyrir neðan:

Mini tennismótið fyrir krakkar 12 ára og yngri (fædd 2000 og síðar) verður á mánudaginn, 30.janúar og hefst kl 14:30. Öllum krökkum sem langar til að taka þátt í Mini tennismótinu geta mætt á mánudaginn kl 14:20.

Verðlaunaafhending og pizzapartý fer fram strax eftir úrslitaleik í ITN styrkleikaflokkieinliða sem hefst mánudaginn 30.janúar kl. 16:00.

Mótsgjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis; 1.500 kr./fædd f. 1996 og yngri; 2.800 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1996 og yngri; 1.500 kr./aðrir
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Boltar: Wilson U.S. Open

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

  • 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
  • 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
  • 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
  • 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Dómarahappadrætti

Dómarahappadrætti verður á mótinu með yfir 15 vinningum frá Wilson, Head, Luxilon og Tournagrip. Hægt er að dæma á eftirfarandi tímum:

  • Föstudaginn 27.janúar frá kl 18:30
  • Laugardaginn 28.janúar frá kl 9:30
  • Sunnudaginn 29.janúar frá kl 10:30
  • Mánudaginn 30.janúar frá kl 14:30

Fyrir hvern leik sem þú dæmir færðu einn happadrættismiða þannig að því fleiri leiki sem þú dæmir því fleiri miða færðu. Þeir sem dæma á mini tennismótinu sem er á mánudaginn frá kl 14:30-16:30 fá þrjá miða ef þeir dæma allan tímann.

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 tennis@tennis.is