Keppt verður í úrslitum á 1.Stórmóti TSÍ kl 16:30 í dag

Birkir_raj_urslit_11

Birkir og Raj keppa um 1.sætið

Keppt verður til úrslita í meistaraflokki karla og kvenna á 1. Stórmóti Tennissamband Íslands kl 16:30 í Tennishöllinni Kópavogi.
  
Í úrslitaleik kvenna mætast  Eirdís Heiður Chen Ragnarsdóttir úr Fjölnir og Karítas Gunnarsdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs.

Í úrslitaleik karla mætast Birkir Gunnarsson úr Tennisfélagi Kópavogs og  Raj K. Bonifacius úr Víkingi. Um þriðja sætið í karlaflokki keppa Jónas Páll Björnsson úr Tennisfélagi Kópavogs og  Rafn Kumar Bonifacius úr Víkingi.