2.Stórmót TSÍ 2015 verður haldið dagana 17.-22.febrúar næstkomandi í Tennishöllinni Kópavogi.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- “Mini Tennis” í öllum barna- og unglingaflokkum – 10 ára / 12 ára / 14 ára / 16 ára / 18 ára og yngri
- Einliðaleik í barna- og unglingaflokkum – 10 ára / 12 ára / 14 ára / 16 ára / 18 ára og yngri
- Einliðaleik í ITN flokki (Ath! Hámark 48 keppendur)
ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þeim stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.
Mini tennis mótið verður miðvikudaginn, 11.febrúar kl. 15.30-16.30. Það er fyrir alla krakka 18 ára og yngri. Keppt verður í fimm flokkum – 10 ára, 12 ára, 14 ára, 16 ára og 18 ára. Allir eiga að mæta kl 15:20. Mótsgjald er 1.500 kr.
Einliðaleikur – 1.500 kr./mini tennis; 2.400 kr./ barna- og unglingaflokkum; 3.500 kr./ ITN
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.
Skráning: www.tennissamband.is, www.tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is
ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er föstudaginn, 13.mars kl.18.00.
Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.
Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudaginn, 22.mars eftir úrslitaleik í ITN flokki.
Mótskrá: Tilbúin 15.mars (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )
Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is
Skráningu í mótið er lokið.
Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.