2.Stórmót TSÍ verður haldið í Tennishöllinni í Kópavogi 26. feb- 28.feb næstkomandi. (ATH. Tvíliðaleikir verða spilaðir laugardagskvöldið 5.mars).
Mótinu er skipt í eftirfarandi 4 flokka:
- “Mini Tennis” fyrir þá yngstu (fæddir árið 2001 eða seinna)
- Barnaflokkar (10, 12 ára og yngri)
- ITN “Styrkleikaflokkur” einliðaleikur sem er opinn fyrir öllum
- ITN “Styrkleikaflokkur” tvíliðaleikur * ATH. Fer fram laugardaginn 5. mars
ATH.Tvíliðaleiksmótið verður haldið laugardaginn 5.mars frá 20:30-24:00
Markmið styrkleikakerfisins er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og númerið svo uppfært eftir mótið.
Mótsgjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis; 1.500 kr./fædd f. 1993 og yngri; 2.500 kr./aðra
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1993 og yngri; 1.500 kr./aðra
Skráning: www.tennissamband.is og í netfang jonaxeljonsson@hotmail.com
– Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er 23.febrúar, kl. 18.00
– Verðlaunaafhending fer fram strax eftir úrslitaleik ITN móts mánudaginn 28.feb
Mótskrá: Tilbúin 25.febrúar (kemur á tfk.is og tennissamband.is)
Mótstjóri: Jón Axel, s.659-7777 jonaxeljonsson@hotmail.com
Skráning í mótið er lokið.