Nú styttist í stærsta og virtasta tennismót ársins á Íslandi!

Dagsetning: 22.–28. júní 2026

Tennisklúbbur Víkings, Traðarlandi 1, Fossvogsdal, 108 Reykjavík

TSÍ Íslandsmót Utanhúss 250 er hæst stigagefandi innanlandsmót ársins og þar verður keppt um Íslandsmeistaratitla í öllum aldursflokkum – allt frá Míní Tennis upp í meistaraflokka og öldungaflokka.

Í boði:

Íslandsmeistaratitlar

Peningaverðlaun í meistaraflokki karla og kvenna

Uppgjöf hraðamælingakeppni

Lokahóf sunnudaginn 28. júní að loknum úrslitaleikjum

Verðlaun í meistaraflokki einliðaleik karla og kvenna:

30.000 kr.

20.000 kr.

10.000 kr.
Auk fjölmargra tvíliða- og tvenndarleikaflokka fyrir bæði yngri og eldri leikmenn.

Skráningarfrestur:

Föstudagurinn 19. júní kl. 18:00

Skráning:
Við hvetjum alla tennisspilara landsins til að taka þátt í þessari einstöku tennisveislu þar sem bestu leikmenn Íslands keppa um eftirsótta Íslandsmeistaratitla!

