Tennisþing 2026

Tennisþing verður haldið þann 25. apríl nk. kl. 13:00 í húsnæði ÍSÍ að Engjateigi 6, fundarherbergi A.

Dagskrá er skv lögum TSÍ og er sem hér segir:

  1. Þingsetning.
  2. Kosnir fastir starfsmenn þingsins.
  3. Kosnar fastar nefndir: Kjörbréfanefnd. Fjárhagsnefnd. Laga- og leikreglnanefnd. Allsherjarnefnd. Kjörnefnd. Nefndir þessar eru skipaðar þremur mönnum hver.
  4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína og leggur fram fundargerð síðasta ársþings.
  5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar.
  6. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
  7. Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær sem fram hafa komið.
  8. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar.
  9. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðsla um þær.
  10. Ákveðið gjald ævifélaga.
  11. Önnur mál.
  12. Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna reikninga og fulltrúa á íþróttaþing.
  13. Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
  14. Þingslit.