Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun allra stiga, 1., 2. og 3 stig, hefst mánudaginn 15. september næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Skráning fer fram á Abler:
http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 & 863-1399 eða á vidar@isi.is